23.10.2008 | 17:53
þar er svíum rétt lýst
Svíar hljóta að mega teljast mestu eiginhagsmunaseggir í hinum siðmenntaða heimi, svo framarlega sem þeir teljast hluti af honum...Svokallað hlutlausir. Sátu og mökuðu krókin í síðari heimstyrjöld, á meðan nágrannaþjóðir þeirra voru brenndar niður og sprengdar, fólk sent í útrýmingarbúðir í stórum stíl. Sögðu sig hlutlausa. Afleit aðstaða fyrir þjóðarbúið að verða gjaldþrota, en svei mér ef það er ekki betra en að komast af með hjálp svía....
Svíþjóð hikandi um Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Hörður Harðarson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef að þú hefðir nágranna, sem ætti dýrasta og flottasta húsið í hverfinu, flottustu bílana, eyddi peningum til hægri og vinstri.
en svo kæmist þú að því að hann væri ad vinna sem Pokadýr í Hagkaup á lúsarlaunum og væri ad fara á hausinn. Hvad mundir
þú gera? Fara yfir til hans og bjóda honum lán? Nei ég held ekki.Steingrímur H Steingrímsson, 23.10.2008 kl. 18:53
Af hverju ættu svíar að sópa upp sóðaskapinn eftir þessa ríkistjórn/seðlabankann. Þegar enginn af þeim vill taka ábyrgð á (aðgerðarleysi sínu) og fara frá og skammast sín?
Magnús Þór Magnússon (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 20:48
Svíar hafa alltaf verið tvöfaldir í roðinu. Kalla sig hlutlausa en kynda undir ófrið á sama tíma. Þeir eru einhverjir stærstu vopnaframleiðendur í heimi. Framleiða mikið af jarðsprengjum, sem drepa saklaust fólk í flestum tilvikum og svo hafa þeir fundið upp jarðsprengjur sem málmleitartæki finnur ekki. Er úr einhverju plastefni.
Hvar er hlutleysi þeirra? Og þeir hafa aldrei stutt við bakið á íslendingum. Aðeins unnið gegn okkur.
Marinó Óskar Gíslason, 24.10.2008 kl. 14:00
Er það kjaftæði að svíar hafi makað krókinn í seinni heimstyrjöldinni? Kallað sig hlutlausa, samtímis sem iðnaðurinn gekk sem aldrei fyrr, þökk sé vopnaframleiðslu fyrir föreren! Þetta eru staðreyndir. Það er einnig staðreynd að svíar framleiða vopn, eingöngu til þeirra sem borga best.
Hörður Harðarson, 25.10.2008 kl. 17:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.